Fjárhagslegt sjálfstæði byrjar hér
Barbara hjálpar þér að stíga fyrstu skrefin inn í heim fjárfestinga.
Hjá Barböru lærir þú að fjárfesta á eigin reikning. Kennslan fer fram í persónu, þannig
skapast meiri líkur á að þú takir skrefið og farir af stað.
Markmiðið er að þú lærir að fjárfesta á eigin spýtur, þú verður fjárfestir.
Þrjár lotur sem leiða þig alla leið
1
Lota 1: Forsenda
2
Lota 2: Fjármögnun
3
Lota 3: Fjárfesting
Innifalið í verði er þriggja lotu fræðsla, 12 mánaða aðgangur að samfélaginu sem innifelur m.a. boð á viðburði og fræðslu á vegum Barböru. Að þeim tíma loknum býðst áframhaldandi aðild með árlegu gjaldi.
Skrá mig
Tilkynning vegna skráningar á námskeið Barböru
Vegna tímabundinna tæknilegra vandamála hjá vefhýsingaraðila Barböru biðjum við ykkur sem viljið skrá ykkur á námskeið að senda tölvupóst á barbara@barbara.is með eftirfarandi upplýsingum:
Fullu nafni
Kennitölu
Dagsetningu námskeiðs
Við sjáum um skráninguna fyrir ykkur.
Við biðjumst velvirðingar á óþægindunum og hlökkum til að taka á móti ykkur!
Kær kveðja,
Barbara
Fræðslan fer fram í Sjávarklasanum og skiptist í þrjú skipti, hvert skipti 90 mínútur.
Þrjár lotur á þremur dögum — veldu dagsetningar sem henta þér.
Helga Viðarsdóttir
Helga hefur um árabil starfað við greiningu fyrirtækja og fjárfestingar og rekur í dag fjárfestingarsjóðinn Spak Invest. Í starfi sínu leggur hún áherslu á langtímahugsun, vandaða fyrirtækjagreiningu og ábyrga meðferð fjármuna. Hún hefur sérstakan áhuga á því að skilja hvað skapar varanlegt virði í fyrirtækjum, meðal annars með því að greina viðskiptamódel, samkeppnisstöðu, sjóðstreymi, skuldsetningu og stjórnendur.
Hugmyndin að Barböru varð til út frá þeirri sannfæringu Helgu að fjárfestingar eigi ekki aðeins að vera aðgengilegar sérfræðingum eða þeim sem þegar búa yfir mikilli þekkingu og fjármagni. Hún vill draga úr þeim hindrunum sem almenningur mætir þegar kemur að fjárfestingum og hjálpa fólki að öðlast þá þekkingu og það sjálfstraust sem þarf til að taka upplýstar ákvarðanir um eigin fjármál.
Með Barböru vill Helga skapa aðgengilegt og styðjandi samfélag þar sem fólk getur lært um fjármálamarkaði í skýrum skrefum, fengið hagnýtar leiðbeiningar og byggt upp þekkingu með raunverulegum dæmum. Markmiðið er ekki aðeins að kenna fólki hvernig á að fjárfesta, heldur einnig að hjálpa því að skilja áhættu, kostnað og mikilvægi langtímahugsunar.
Helga hefur brennandi áhuga á fjármálalæsi og telur að aukin þekking á fjárfestingum geti styrkt fjárhagslegt sjálfstæði fólks. Með Barböru sameinar hún reynslu sína af sjóðstýringu og fjármálamörkuðum við þá sýn að gera fjárfestingar skiljanlegri, mannlegri og aðgengilegri fyrir almenning.
