Skilmálar

Hér finnur þú skilmála sem gilda um kaup á námskeiðum Barböru í netversluninni. Ef eitthvað er óljóst eða vandamál kemur upp viljum við að sjálfsögðu reyna að leysa úr því með þér.

Hafðu samband við okkur á netfanginu: barbara@barbara.is

Almennt

Skilmálar þessir gilda um kaup á námskeiðum Barböru í gegnum netverslun Barböru og eru samþykktir við kaup.

Barbara er rekin af Matri ehf., sem er seljandi námskeiðanna og samningsaðili kaupanda.

Skráning á námskeið er staðfest þegar greiðsla hefur farið fram.

Matri ehf. áskilur sér rétt til að leiðrétta eða hætta við kaup ef rangar upplýsingar hafa birst á vefnum, svo sem um verð, dagsetningu eða framboð námskeiðs.

Seljandi: Matri ehf. — Kennitala: 510626-1680

Verð og greiðsla

Öll verð eru gefin upp með virðisaukaskatti þar sem það á við.

Verð geta breyst án fyrirvara en verð sem staðfest hefur verið við kaup breytist ekki eftir á.

Afpöntun og endurgreiðsla

Um kaup á námskeiðum á netinu gilda lög um neytendasamninga nr. 16/2016.

Kaupandi hefur 14 daga rétt til að falla frá kaupum eftir því sem lög heimila. Hafi námskeið þegar hafist að ósk kaupanda getur réttur til endurgreiðslu takmarkast samkvæmt lögum.

Að liðnum lögbundnum fresti eru námskeiðsgjöld ekki endurgreidd vegna forfalla eða fjarveru þátttakanda.

Ef Matri ehf. aflýsir námskeiði fær kaupandi námskeiðsgjaldið endurgreitt.

Breytingar á námskeiði

Matri ehf. áskilur sér rétt til að breyta dagsetningu, tímasetningu, staðsetningu, kennara eða dagskrá námskeiðs ef nauðsyn krefur.

Námsefni

Allt námsefni Barböru er ætlað til persónulegra nota þátttakanda.

Óheimilt er að afrita, dreifa, selja, birta eða miðla námsefni til annarra án skriflegs samþykkis Matri ehf.

Fjárfestingar og ábyrgð

Námskeið Barböru eru fræðsla og fela ekki í sér persónulega fjárfestingarráðgjöf.

Umfjöllun um fyrirtæki, verðbréf, sjóði eða aðra fjárfestingarkosti er í fræðsluskyni.Þátttakendur taka allar
fjárfestingarákvarðanir á eigin ábyrgð.

Matri ehf. ábyrgist ekki ávöxtun eða fjárhagslegan árangur þátttakenda.

Gildandi lög

Um viðskipti Matri ehf. við neytendur gilda íslensk lög.

Með því að ljúka kaupum staðfestir kaupandi að hann hafi kynnt sér og samþykkt þessa skilmála.

Mörg stéttarfélög veita styrk fyrir allt að 90% af námskeiðsgjaldi.